154. löggjafarþing — 37. fundur, 27. nóv. 2023.
áhrif breytinga á alþjóðaheilbrigðisreglugerðinni á regluverk á Íslandi.
Hæstv. forseti. Ég vil þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni fyrir að taka upp þetta mikilvæga mál. Þetta hefur verið í umræðunni og það er líka bara alveg sjálfsagt. Ég held að það sé bara mjög gott að draga þetta einmitt fram hér. Ég get alveg staðið hér föstum fótum á því að þetta mun ekki skerða okkar fullveldi og það mun ekki skerða okkar ákvarðanatökurétt á hinu háa íslenska Alþingi. Það er þannig og í raun og veru engu við það að bæta.