144. löggjafarþing — 37. fundur,  27. nóv. 2014.

afgreiðsla rammaáætlunar úr atvinnuveganefnd.

[12:22]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Forseti telur að hann hafi heyrt nokkuð vel á þeim ræðum sem þegar hafa verið haldnar og skipta nú væntanlega tugum um þetta mál í hverju áhyggjur hv. þingmanna eru fólgnar, en forseti vill engu að síður undirbúa sig efnislega undir umræðu með þingflokksformönnum og skilur ekki alveg þetta tal um að hann sé að reyna að koma sér undan því að takast á um þetta mál. Forseti vill eingöngu vanda sig í þessu máli og hvetur til þess að hann geti að minnsta kosti gert hlé, eins og ætlunin var, í 15 mínútur hér og síðan hafið atkvæðagreiðslu og að því búnu þá umræðu sem sérstaklega var hvatt til og greitt var fyrir af hálfu forseta að gæti farið fram.