Bráðabirgðaútgáfa.
153. löggjafarþing — 38. fundur,  28. nóv. 2022.

varamenn taka sæti.

[15:01]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Borist hefur bréf frá varaformanni þingflokks Pírata um að Halldóra Mogensen, 3. þm. Reykv. n., geti ekki sótt þingfundi á næstunni. Einnig hefur borist bréf frá formanni þingflokks Sjálfstæðisflokksins um að Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, 2. þm. Norðvest., verði fjarverandi á næstunni vegna embættiserinda.

Í dag tekur því sæti á Alþingi 1. varamaður á lista Pírata í Reykjavíkurkjördæmi norður, Lenya Rún Taha Karim, og 1. varamaður á lista Sjálfstæðisflokksins í Norðvest., Teitur Björn Einarsson. Lenya Rún Taha Karim og Teitur Björn Einarsson hafa áður tekið sæti á Alþingi og eru boðin velkomin til starfa að nýju.