131. löggjafarþing — 39. fundur, 25. nóv. 2004.
Fjárlög 2005.
1. mál
[12:05]
Frsm. meiri hluta fjárln. (Magnús Stefánsson) (F) (andsvar):
Virðulegi forseti. Við framsóknarmenn erum góðir í skrokknum, höfum góða fætur og kiknum ekki í hnjánum. Ég vil ítreka að það liggur fyrir í stjórnarsáttmála að farið verði í þessa vinnu. Ég vil bara beina því til míns ágæta vinar, hv. þm. Einars Más Sigurðarsonar, að bíða með svona fullyrðingar þangað til tilefni verður til, ef til þess kæmi.