140. löggjafarþing — 39. fundur, 17. des. 2011.
almannatryggingar o.fl.
380. mál
Frú forseti. Hér er lagt til að frítekjumark verði framlengt út árið 2012. Ef það er ekki gert fellur það bara niður þannig að ég get ekki verið á móti því. Hins vegar er frítekjumarki haldið óbreyttu sem gerir það að verkum að bæturnar skerðast með þeim hætti og það get ég ekki stutt þannig að ég sit hjá.