131. löggjafarþing — 39. fundur, 25. nóv. 2004.
Fjárlög 2005.
1. mál
[11:09]
Frsm. meiri hluta fjárln. (Magnús Stefánsson) (F) (andsvar):
Virðulegi forseti. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir um 1.300 millj. kr. til málsins sem háttvirtur þingmaður nefndi. Ég lít svo á að með því sé verið að uppfylla þá yfirlýsingu sem um er rætt. Við höfum oft rætt þetta mál áður. Ég vísa til þeirrar umræðu sem hefur farið fram um málið. Í frumvarpinu er sem sagt gert ráð fyrir um 1.300 millj. kr. í þetta mál.