140. löggjafarþing — 39. fundur, 17. des. 2011.
almannatryggingar o.fl.
380. mál
Frú forseti. Hér er verið að gera ýmsar breytingar á almannatryggingalögunum og á lögum um atvinnuleysistryggingar. Við hv. þm. Unnur Brá Konráðsdóttir, fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í hv. velferðarnefnd, styðjum breytingartillögur meiri hlutans sem eru til bóta. Við munum sitja hjá við aðrar greinar frumvarpsins eða greiða atkvæði með þeim og ég mun koma í atkvæðaskýringu um einstakar greinar.