140. löggjafarþing — 4. fundur, 5. okt. 2011.
afsögn varaþingmennsku.
Borist hefur bréf frá 2. varaþingmanni Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi, Bryndísi Gunnlaugsdóttur, dagsettu 26. ágúst sl. þar sem hún segir af sér varaþingmennsku fyrir flokkinn. Samkvæmt þessu færast varamenn flokksins neðar á listanum upp um eitt sæti og 2. varaþingmaður Framsóknarflokksins í kjördæminu verður Guðni Ragnarsson bóndi.