135. löggjafarþing — 41. fundur,  11. des. 2007.

fjarskipti.

305. mál
[20:37]
Hlusta

Frsm. samgn. (Ólöf Nordal) (S):

Herra forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti hv. samgöngunefndar á þskj. 421 um frumvarp til laga um breytingu á lögum um fjarskipti, nr. 81/2003, með síðari breytingum. Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Ragnhildi Hjaltadóttur og Karl Alvarsson frá samgönguráðuneyti og Björn Geirsson og Friðrik Pétursson frá Póst- og fjarskiptastofnun.

Í frumvarpinu er lagt til að álagningarprósenta fjarskiptafyrirtækja í jöfnunarsjóð alþjónustu verði hækkuð úr 0,12% í 0,65% af bókfærðri veltu fjarskiptafyrirtækja. Þetta kemur til af því að með úrskurði úrskurðarnefndar fjarskipta- og póstmála frá 10. október 2007 hafa nú fallið verulegar viðbótarskuldbindingar á jöfnunarsjóðinn. Því er nauðsynlegt að hækka gjaldið til að sjóðurinn geti staðið undir skuldbindingum sínum.

Á fundi nefndarinnar kom fram að nokkrir aðilar væru að velta fyrir sér að höfða mál fyrir dómstólum í því skyni að fá úrskurðinum snúið við. Nefndin leggur áherslu á að ef af slíkri málshöfðun verður og henni lyktar með því að úrskurðinum verði snúið við verði álagningarprósentan lækkuð á ný.

Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt. Undir álitið skrifa hv. þm. Steinunn Valdís Óskarsdóttir, formaður, Ólöf Nordal, Herdís Þórðardóttir, Árni Þór Sigurðsson, Árni Johnsen og Guðni Ágústsson.