139. löggjafarþing — 42. fundur,  6. des. 2010.

varamaður tekur þingsæti.

[15:01]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Borist hefur bréf frá Gunnari Braga Sveinssyni, 4. þm. Norðvest., um að hann geti ekki af persónulegum ástæðum sótt þingfundi næstu tvær vikur. Í dag tekur sæti á Alþingi varamaður hans, Sigurgeir Sindri Sigurgeirsson bóndi. Hann hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðinn velkominn til starfa á ný.