144. löggjafarþing — 42. fundur, 5. des. 2014.
breyting á ríkisstjórn.
Ég tek undir árnaðaróskir hæstv. forsætisráðherra til nýs innanríkisráðherra, Ólafar Nordal, og býð hana velkomna til starfa á vettvangi Alþingis. Hún á, eins og segir í 51. gr. stjórnarskrár, nú sæti á Alþingi samkvæmt embættisstöðu sinni.
Ég vil við þetta tækifæri og fyrir hönd Alþingis færa fráfarandi innanríkisráðherra, Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, þakkir fyrir samstarfið meðan hún gegndi ráðherraembætti.