144. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2014.

varamaður tekur þingsæti.

[10:36]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Borist hefur bréf frá 1. þm. Reykv. s., Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, um að hún geti ekki sótt þingfundi á næstunni. Í dag tekur því sæti á Alþingi 1. varamaður á lista Sjálfstæðisflokksins í kjördæminu, Sigríður Á. Andersen.

Sigríður Á. Andersen hefur tekið sæti áður á Alþingi og er boðin velkomin til starfa að nýju.