151. löggjafarþing — 42. fundur,  18. des. 2020.

tilkynning.

[14:19]
Horfa

Páll Magnússon (S):

Virðulegi forseti. Eins og þingheimi er kunnugt skipar allsherjar- og menntamálanefnd árlega undirnefnd til að fara yfir umsóknir um veitingu ríkisborgararéttar með lögum. Umsóknir ásamt fylgigögnum eru afhentar nefndinni að lokinni forvinnslu Útlendingastofnunar og nefndinni bárust að þessu sinni 133 umsóknir. Þær bárust óvenjuseint að þessu sinni. Undirnefndin telur mikilvægt að vanda vel til verka við meðferð þeirra og leggur áherslu á að umsækjendur fái vandaða málsmeðferð. Vegna þröngs tímaramma til þessara verka núna og óviðráðanlegra aðstæðna liggur fyrir að nefndinni gefst ekki nægur tími til að fara yfir þann fjölda umsókna með viðeigandi hætti. Með hliðsjón af framangreindu hefur undirnefndin ákveðið að fresta afgreiðslu frumvarps til laga um veitingu ríkisborgararéttar sem tíðkast hefur að sé fyrir jól. Nefndin hefur fullvissað sig um að frestun á afgreiðslu frumvarpsins muni ekki verða til þess að staða umsækjenda breytist meðan á málsmeðferð stendur og mun nefndin ljúka störfum og leggja frumvarp fyrir þingið um þetta efni fyrir 1. febrúar 2021.