151. löggjafarþing — 42. fundur,  18. des. 2020.

frestun á fundum Alþingis.

425. mál
[14:21]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Ég mæli fyrir tillögu til þingsályktunar um samþykki til frestunar á fundum Alþingis samkvæmt 1. mgr. 23. gr. stjórnarskrárinnar. Tillagan er svohljóðandi:

Alþingi ályktar að veita samþykki til þess að fundum þingsins verði frestað frá 18. desember 2020, eða síðar ef nauðsyn krefur, til 18. janúar 2021. Tillagan skýrir sig sjálf.