133. löggjafarþing — 44. fundur,  7. des. 2006.

Sinfóníuhljómsveit Íslands.

57. mál
[23:29]
Hlusta

Frsm. menntmn. (Sigurður Kári Kristjánsson) (S):

Frú forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti menntamálanefndar um breytingu á lögum nr. 36/1982, um Sinfóníuhljómsveit Íslands.

Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Val Árnason skrifstofustjóra frá menntamálaráðuneyti, Þröst Ólafsson, framkvæmdastjóra Sinfóníuhljómsveitar Íslands, Sigurð Bjarka Gunnarsson frá Starfsmannafélagi Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Pál Magnússon, útvarpsstjóra Ríkisútvarpsins.

Frumvarpið var sent til umsagnar og bárust umsagnir frá útvarpsstjóra Ríkisútvarpsins, útvarpsréttarnefnd, Seltjarnarneskaupstað, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, ríkislögreglustjóra, Kennaraháskóla Íslands, Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands, Málvísindastofnun Háskóla Íslands, Hollvinasamtökum Ríkisútvarpsins og Viðskiptaráði Íslands.

Frumvarp þetta er lagt fram samhliða frumvarpi til laga um Ríkisútvarpið ohf. og felur í sér tillögu um niðurfellingu greiðsluþátttöku Ríkisútvarpsins í rekstrarkostnaði Sinfóníuhljómsveitar Íslands og einnig að greiðsluþátttaka Seltjarnarnesbæjar verði felld niður.

Við umfjöllun nefndarinnar var fjallað um þau hljóðfæri sem Ríkisútvarpið hélt eftir við rekstrarlegan aðskilnað Ríkisútvarpsins og Sinfóníuhljómsveitarinnar en þá hélt Ríkisútvarpið eftir tveimur fiðlum og einni víólu. Samkvæmt skýrslu matsnefndar vegna stofnefnahagsreiknings verða framangreind hljóðfæri ekki hluti af eignum Ríkisútvarpsins ohf. og er í þessu sambandi einkum litið til Guarnerius del Gesu fiðlunnar frá 1728. Framangreind hljóðfæri verða eign ríkissjóðs og verður gerður samningur milli ríkisins og Sinfóníuhljómsveitarinnar um afnot þeirra.

Frú forseti. Nefndin hefur litið svo á að fyrirhuguð lækkun á skuld Ríkisútvarpsins við ríkissjóð að fjárhæð 625 millj. kr. samkvæmt breytingartillögu við frumvarp til fjáraukalaga fyrir árið 2006, sem er til meðferðar á yfirstandandi þingi og ætlað er að tryggja 15% eiginfjárhlutfall við stofnun Ríkisútvarpsins ohf., komi til lækkunar á skuld Ríkisútvarpsins við Sinfóníuhljómsveit Íslands sem samkvæmt árshlutareikningi nam 692,2 millj. kr. 30. júní 2006.

Frú forseti. Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt. Hv. þm. Mörður Árnason, Einar Már Sigurðarson og Össur Skarphéðinsson skrifa undir álitið með fyrirvara og áskilja sér rétt til að flytja og styðja breytingartillögur við málið.

Aðrir þingmenn sem skrifa undir þetta nefndarálit eru auk þess sem hér stendur hv. þm. Dagný Jónsdóttir, Sigurrós Þorgrímsdóttir, Kjartan Ólafsson og Sæunn Stefánsdóttir.