143. löggjafarþing — 44. fundur, 20. des. 2013.
ýmsar forsendur fjárlagafrumvarps 2014.
3. mál
Virðulegi forseti. Hér eru greidd atkvæði um þá tillögu sem er flutt í framhaldi af samkomulagi formanna flokkanna við þinghlé um að fá ríkisstjórnina til að falla frá því hámarki á endurgreiðslu þróunarkostnaðar sem hún hugðist setja á og var hluti af aðför hennar að rannsóknum og þróun í íslensku atvinnulífi. Það er fagnaðarefni að við skulum hafa náð þessum árangri.