151. löggjafarþing — 44. fundur, 18. jan. 2021.
varamaður tekur sæti.
Borist hefur bréf frá starfandi þingflokksformanni Framsóknarflokksins um að hv. 4. þm. Norðaust., Þórunn Egilsdóttir, verði fjarverandi á næstunni. Eins og tilkynnt var á vef Alþingis tók 1. varamaður á lista í kjördæminu, Þórarinn Ingi Pétursson, sæti á Alþingi fyrir hana þriðjudaginn 12. janúar síðastliðinn.
Þórarinn Ingi Pétursson hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðinn velkominn til starfa að nýju.