144. löggjafarþing — 45. fundur,  10. des. 2014.

fjárlög 2015.

1. mál
[16:36]
Horfa

Árni Páll Árnason (Sf):

Virðulegi forseti. Við fögnum því að bætt er við fjárveitingu til Háskóla Íslands en það er ekki nóg að gert. Háskólinn fær ekki greitt með öllum þeim nemendum sem hann sinnir. Það er vandamál sem stjórnarmeirihlutinn skilur eftir óleyst.