153. löggjafarþing — 45. fundur,  9. des. 2022.

dagskrártillaga.

[13:01]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Eins og tilkynnt var á síðasta þingfundi hefur forseta borist dagskrártillaga frá hv. þm. Andrési Inga Jónssyni, svohljóðandi:

„Undirritaður gerir það að tillögu sinni, í samræmi við 1. mgr. 77. gr. laga um þingsköp Alþingis, að á dagskrá næsta fundar verði þau dagskrármál sem forseti Alþingis leggur til, að því undanskildu að út af dagskrá fundarins verði tekið 382. mál, frumvarp til laga um breytingu á lögum um útlendinga, alþjóðleg vernd.“

Í bréfinu fylgir síðan rökstuðningur með tillögunni. Forseti hyggst nú kalla til atkvæðagreiðslu um þessa dagskrártillögu.