151. löggjafarþing — 45. fundur, 19. jan. 2021.
mannabreytingar í nefnd.
Forseta hefur borist bréf frá formanni þingflokks Framsóknarflokksins um mannabreytingar í nefndum þingsins, sbr. 16. gr. þingskapa, með þeirri ósk að Þórunn Egilsdóttir taki sæti sem aðalmaður í efnahags- og viðskiptanefnd í stað Willums Þórs Þórssonar. Þórarinn Ingi Pétursson, er situr á þingi sem varaþingmaður fyrir Þórunni Egilsdóttur, mun sitja í nefndinni í hennar fjarveru.
Þessar mannabreytingar skoðast samþykktar án atkvæðagreiðslu ef enginn hreyfir andmælum.