137. löggjafarþing — 46. fundur, 23. júlí 2009.
listaverk í eigu gömlu bankanna.
Virðulegi forseti. Ég tek undir með hv. þingmanni um mikilvægi þessa máls. Lokasamningarnir eru eftir og við erum mjög meðvituð um að fylgja þessu máli eftir og ljúka því þannig að gerð verði grein fyrir því þegar lokasamningar liggja fyrir og ég fagna áhuga þingsins á að fylgja málinu eftir.