150. löggjafarþing — 46. fundur, 16. des. 2019.
sviðslistir.
276. mál
Virðulegi forseti. Við greiðum nú atkvæði um frumvarp um sviðslistir. Hér er á ferðinni frumvarp sem hefur það að markmiði að efla sviðslistir og búa þeim hvað hagstæðust skilyrði. Nefndin gerði þó töluverðar breytingar á upphaflega frumvarpinu sem kom fyrir nefndina og ég tel að nefndinni hafi gengið það frekar vel. Við segjum með þessu að sviðslist sé fag.