Bráðabirgðaútgáfa.
153. löggjafarþing — 46. fundur, 10. des. 2022.
tilkynning forseta.
Við lok þingfundar í gær tilkynnti forseti um að honum hefði borist dagskrártillaga frá Arndísi Önnu Kristínardóttur Gunnarsdóttur og að atkvæðagreiðsla um hana myndi fara fram í dag, en þar sem dagskrá þingfundar í dag samræmist því sem fram kemur í dagskrártillögunni kemur hún ekki til atkvæða.