154. löggjafarþing — 46. fundur, 8. des. 2023.
fjárlög 2024.
1. mál
Virðulegi forseti. Hér er tillaga um það að bæta við fjármagni til þess að tryggja fjármagn í íslenskukennslu fyrir útlendinga. Það er mikilvægt, við vitum það, og ég vona að sem flest hér inni standi saman að því að tryggja þessa fjárheimild.