veiting ríkisborgararéttar.
Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um veitingu ríkisborgararéttar frá allsherjar- og menntamálanefnd. Nefndinni bárust að þessu sinni 118 umsóknir um ríkisborgararétt á haustþingi 150. löggjafarþings en samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga um íslenskan ríkisborgararétt veitir Alþingi ríkisborgararétt með lögum. Nefndin leggur til að umsækjendum á 24 umsóknum verði veittur ríkisborgararéttur að þessu sinni. Í 1. gr. frumvarpsins sjálfs eru nöfn þessara 24 einstaklinga talin upp og ég sé ekki ástæðu til að rekja þau hér heldur vísa til frumvarpsins.