144. löggjafarþing — 47. fundur, 12. des. 2014.
ýmsar forsendur fjárlagafrumvarps 2015.
3. mál
Herra forseti. Ég ætlaði að tjá fagnaðarlæti mín yfir því að hér sé verið að framlengja áfram að menn geti skipt greiðslum af aðflutningsgjöldum á tvo mánuði í staðinn fyrir einn. Þetta var bráðabirgðaákvæði sem tekið var upp eftir hrun. Ég held að það sé ekki komin sú staða að fyrirtæki ráði við að borga allt í einu þannig að ég styð þetta eindregið.