150. löggjafarþing — 47. fundur,  17. des. 2019.

dánaraðstoð.

486. mál
[10:35]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Ég kem hingað upp til að ítreka þakkir mínar til flutningsmanns þessarar skýrslubeiðni. Mér finnst mikilvægt að við könnum hvernig þessum málum er háttað víðs vegar í kringum okkur og könnum flötinn fyrir því að heimila val, að heimila fólki að velja að deyja með reisn. Ekki veit ég hvernig ég myndi velja ef ég stæði frammi fyrir valinu en það er það sem skiptir máli. Valið er það sem er mikilvægt og þess vegna styð ég að sjálfsögðu þessa skýrslubeiðni heils hugar.