154. löggjafarþing — 47. fundur,  11. des. 2023.

stuðningur við mál um græna orkuframleiðslu.

[15:48]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Virðulegur forseti. Eins og kom fram hér í óundirbúnum fyrirspurnatíma áðan þá virðist orkumálaráðherra vera nokkuð tvístígandi varðandi næstu skref í þeim orkuskorti sem fram undan er. Í raun er staðan sú að eini Sjálfstæðismaðurinn á Íslandi sem telur allt á fullu í orkumálum er ráðherra orkumála. Hann virðist vera undir hælnum á Landvernd og pólitískum armi félagsins, Vinstrihreyfingunni – grænu framboði, og því hef ég ákveðið fyrir hönd þingflokks Miðflokksins, eftir samráð við þingflokkinn í heild sinni, að lýsa yfir stuðningi þess efnis að Miðflokkurinn mun styðja við öll þau mál sem ríkisstjórnin leggur fram sem verða til þess að auka orkuöryggi í landinu, styðja við framleiðslu grænnar orku þannig að við komumst úr sporunum. Þessi kyrrstaða sem hæstv. orkumálaráðherra virðist telja bara vera á ágætisstað gengur ekki mikið lengur. Ég ítreka: Þingflokkur Miðflokksins mun styðja við þau mál sem fram koma og ég kannski ítreka spurninguna sem fram kom: Eru einhver mál sem hafa verið stoppuð?