148. löggjafarþing — 47. fundur, 11. apr. 2018.
innflutningskvótar á ostum.
Virðulegi forseti. Ég þakka sömuleiðis. En það hefði verið miklu æskilegra ef þetta mál hefði verið klárað á síðasta þingi. Það hefði verið vilji og geta til þess. En þannig standa málin og ég hef sagt það og ítreka þá skoðun mína að því eigi að kippa í liðinn. Ég skal glaður ganga til þess verks sem betur hefði verið búið að vinna.