154. löggjafarþing — 47. fundur,  11. des. 2023.

stuðningur við mál um græna orkuframleiðslu.

[16:00]
Horfa

utanríkisráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Ég vildi bara nota tækifærið og segja það sem mína skoðun að mér heyrist að menn vilji ræða oftar um orkumálin. Forseti hlýtur að geta fundið tíma til að ræða þau vegna þess að ríkisstjórnin vill gjarnan ræða um þau í mjög breiðu samhengi. Nýi uppáhaldsþingmaður stjórnarandstöðunnar, hv. þm. Jón Gunnarsson — sem rétt stóðst vantrauststillögu hérna 30. mars síðastliðinn frá stjórnarandstöðunni, þá gat hún ekki losnað við hann nógu snemma en er nú borinn á gullstól vegna þess að hann segir eitthvað sem stjórnarandstöðunni líkar í dag — hann mun örugglega taka þátt í þeirri umræðu og mörgum mun líka vel það sem hann segir þar. En það mun örugglega líka umhverfisráðherra gera og við fleiri og þá getum við rætt þetta eftir að við höfum klárað þessa atkvæðagreiðslu sem við erum nú mætt hingað til að fara í og ég treysti forseta til að finna góðan tíma í þetta.