Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 48. fundur,  13. des. 2022.

almannatryggingar.

568. mál
[15:16]
Horfa

Lenya Rún Taha Karim (P) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Ég ætla bara að taka undir með hv. þm. Birni Leví Gunnarssyni varðandi bara allt sem hann sagði. Ég hef engu að bæta við athugasemdir hans varðandi barnabæturnar en þó langar mig að minna á að við erum með stjórnarskrá sem er í gildi hér og í henni er kveðið á um þrískiptingu ríkisvaldsins og samkvæmt lögum og góðri stjórnskipunarvenju þá á löggjafarvaldið að hafa eftirlit með framkvæmdarvaldinu og þá sér í lagi stjórnarandstaðan. Stjórnarandstaðan er hér til þess að veita framkvæmdarvaldinu og meiri hlutanum aðhald og um leið og við erum komin út í einhverja sálma um að það megi ekki gagnrýna hæstv. forsætisráðherra eða bara framkvæmdarvaldið yfir höfuð þá erum við á frekar hættulegum jarðvegi, herra forseti. Það er nú þegar búið að — hvernig orða ég þetta fallega? — klippa vængina aðeins af stjórnarandstöðunni (Forseti hringir.) og við erum ekki með meiri hluta í neinni nefnd og erum ekki með nefndarformennsku nema í einni nefnd. (Forseti hringir.) Ég hvet alla hv. þingmenn til þess að nota þau tæki og tól sem þeir hafa til að veita framkvæmdarvaldinu aðhald, sem við eigum að vera að gera.