Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 48. fundur,  13. des. 2022.

almannatryggingar.

568. mál
[16:45]
Horfa

Forseti (Andrés Ingi Jónsson):

Varðandi athugasemdir um það að hér eigi sér stað einhver efnisleg umræða undir liðnum um fundarstjórn forseta þá hefur forseti jú heyrt fólk ræða efni máls enda tengist umræðan áminningu sem þingmaður fékk vegna staðhæfinga sem voru viðhafðar í ræðustól. Það er, að mati forseta, eðlilegt að þingmenn komi ólíkum sjónarmiðum varðandi efni þess máls á framfæri, eins og t.d. formaður fjárlaganefndar gerði hér áðan og mun mögulega gera aftur núna þegar hún tekur til máls um fundarstjórn forseta síðara sinni.