131. löggjafarþing — 48. fundur, 3. des. 2004.
Fjárlög 2005.
1. mál
[11:19]
Frsm. meiri hluta fjárln. (Magnús Stefánsson) (F) (andsvar):
Hæstv. forseti. Varðandi það hvort frumvarp til fjáraukalaga muni koma fram fyrr, þ.e. á næsta vorþingi, þá get ég auðvitað ekki svarað til um það á þessari stundu. Ég tel að það verði metið eftir aðstæðum á fyrri hluta næsta árs. Við verðum bara að sjá til hvernig þeim málum verður háttað.