135. löggjafarþing — 48. fundur, 16. jan. 2008.
breytt fyrirkomulag umræðna um störf þingsins.
Vegna athugasemda hv. þingmanns um fundarstjórn forseta er þess að geta að hér eru umræður um störf þingsins þannig að þeir fá orðið sem kveðja sér hljóðs, í þeirri röð og á þeim tíma sem þeir óska eftir að taka til máls. Gildir það jafnt um ráðherra sem aðra þingmenn.