mannvirki.
Hæstv. forseti. Eins og kom fram við 2. umr. hef ég tekið þátt í störfum umhverfisnefndar og afgreiðslum hennar á málinu sem hér er til umfjöllunar. Ég ætla ekkert að víkja mér undan ábyrgðinni og fylgja málinu alla leið í gegnum þetta á minn hátt í þeirri meðferð. Ég ber á því ábyrgð eins og aðrir nefndarmenn í hv. umhverfisnefnd.
Hins vegar, eins og við 2. umr. málsins, eru sjónarmið ekki þau sömu meðal allra í mínum þingflokki. Ég geri ráð fyrir að það muni endurspeglast í atkvæðagreiðslunni á eftir.