139. löggjafarþing — 49. fundur, 15. des. 2010.
mannvirki.
78. mál
Hæstv. forseti. Ég tel rétt að vekja athygli á því að ég styð ekki þetta mál. Ég tel að mögulegt hefði verið að koma hlutum þannig fyrir að hægt hefði verið að koma verkefnunum sem eiga að fara inn í nýja ríkisstofnun fyrir hjá öðrum stofnunum sem þegar eru starfræktar af hálfu ríkisins. Hér hefði verið hægt að draga saman kostnað hjá ríkinu. Þess vegna styð ég ekki þetta mál.