145. löggjafarþing — 49. fundur, 8. des. 2015.
fjáraukalög 2015.
304. mál
Virðulegur forseti. Alþingi er kjararáð aldraðra og öryrkja. Kjararáð hefur úrskurðað alþingismönnum kauphækkanir frá síðasta vori eins og flestum öðrum hópum í samfélaginu. Nú reynir á hvort alþingismenn ganga fram í kjaramálum aldraðra og öryrkja með sama hætti og þeir sjálfir hafa notið. Ég segi já.