149. löggjafarþing — 49. fundur,  13. des. 2018.

svar við fyrirspurn.

[13:32]
Horfa

Sigurður Páll Jónsson (M):

Hæstv. forseta. Ég kem hingað upp í sömu erindum og hv. þm. Þorsteinn Sæmundsson og óska eftir því að hæstv. forseti hjálpi okkur í að finna leið til að fá svör við þessu máli. Einhver svör eru komin en hluta af því er ósvarað. Með sömu rökum og hv. þingmaður sagði í ræðunni á undan átta ég mig ekki á því hvers vegna þetta getur ekki gengið þá leið sem það á að ganga. Það er 15 daga skilafrestur við svona fyrirspurnum. Í maí kom einhver hluti af því með síðan einhverjum óútskýrðum frestum um frekara svar, þannig að við biðjum um aðstoð, hæstv. forseti.