150. löggjafarþing — 49. fundur,  20. jan. 2020.

framhaldsfundir Alþingis.

[15:01]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Hv. alþingismenn. Alþingi kemur nú saman til framhaldsfunda að loknu jólahléi og ég býð sömuleiðis alla hv. alþingismenn sem og starfsfólk Alþingis velkomið til starfa. Ég óska þeim og landsmönnum öllum gleðilegs árs.