151. löggjafarþing — 49. fundur,  27. jan. 2021.

samvinnufélög o.fl.

56. mál
[19:17]
Horfa

Lilja Rafney Magnúsdóttir (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Ég vinn bara með þær upplýsingar sem ég hef frá forseta Alþingis um þetta mál. Ég veit ekki til þess að hv. þm. Halla Signý Kristjánsdóttir hafi kallað málið inn nema milli 2. og 3. umr. Ég fékk þær upplýsingar hjá hæstv. forseta að málinu hefði verið frestað og af þeim sökum setur hann það aftur á dagskrá hér. Svo einfalt er það. Ég ætla ekki að deila við hv. þingmann um það, það hlýtur að vera hægt að fá úr því skorið. En mínar upplýsingar eru þær að málinu hafi verið frestað. Eins og ég sagði áðan þá gat ég því miður ekki verið viðstödd þessa umræðu og ekki setið þennan fund daginn eftir vegna veikinda.