143. löggjafarþing — 5. fundur, 8. okt. 2013.
varamaður tekur þingsæti.
Borist hefur bréf frá hv. 8. þm. Reykv. s., Árna Þór Sigurðssyni, um að hann geti ekki sinnt þingstörfum á næstunni. Í gær, 7. október, tók því sæti á Alþingi 1. varamaður á lista Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs í kjördæminu, Steinunn Þóra Árnadóttir. Steinunn hefur áður tekið sæti á Alþingi og er hún boðin velkomin til starfa á ný.
Þessi skipti hafa verið tilkynnt á vef Alþingis.