Málefni aldraðra.
heilbrigðisráðherra (Jón Kristjánsson) (F):
Herra forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um málefni aldraðra, nr. 125/1999. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að gjald í Framkvæmdasjóð aldraðra verði hækkað um 2,9%, þ.e. úr 5.576 kr. í 5.738 kr. Hækkunin er vegna verðlagsbreytinga en gert er ráð fyrir að byggingarvísitala hækki um 2,9% frá árinu 2004 til ársins 2005.
Framkvæmdasjóður aldraðra fær tekjur af sérstöku gjaldi sem skattstjórar leggja á þá sem eru skattskyldir samkvæmt lögum um tekjuskatt og eignarskatt. Úr sjóðnum eru m.a. veittir styrkir til byggingar öldrunarstofnana. Samstarfsnefnd um málefni aldraðra stjórnar sjóðnum og gerir árlega tillögur til heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra um úthlutun úr honum.
Virðulegi forseti. Ég tel brýnt að frumvarp þetta hljóti afgreiðslu á haustþingi þannig að það fylgi fjárlagafrumvarpinu og leyfi mér því að leggja til að því verði vísað til hv. heilbrigðis- og trygginganefndar og til 2. umr.