141. löggjafarþing — 5. fundur, 18. sept. 2012.
orð ráðherra í óundirbúnum fyrirspurnatíma o.fl.
Frú forseti. Ég vil spyrja hæstv. forseta hvort óundirbúnar fyrirspurnir séu fráteknar fyrir þingflokka í þinginu. Í þessum óundirbúna fyrirspurnatíma komust að tveir fulltrúar þingflokka Sjálfstæðisflokks og Framsóknar en ég komst ekki að þrátt fyrir að hafa sent inn beiðni þess efnis þrjár mínútur yfir átta í morgun. Mér þætti mjög vænt um að fá svar við spurningu minni þannig að ég geti snúið mér að einhverju öðru en að reyna að eiga orðastað við ráðherra í þingsal.