150. löggjafarþing — 5. fundur, 16. sept. 2019.
útflutningur á óunnum fiski.
Virðulegi forseti. Ég skal játa að ég hef ekki velt því fyrir mér að gera breytingar á þeirri gjaldtöku sem Alþingi samþykkti sl. vor, að leggja þetta gjald á slátt á klóþangi. Til þess liggja ýmsar ástæður en ég hefði viljað fá aðeins lengri reynslu á málið áður en við færum að ræða breytingar á því í þingsal.