143. löggjafarþing — 50. fundur,  15. jan. 2014.

skipun nefndar um málefni hinsegin fólks.

29. mál
[15:41]
Horfa

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir (Sf):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Katrínu Jakobsdóttur fyrir að flytja þessa tillögu til þingsályktunar og ég gleðst innilega yfir því að Alþingi Íslendinga sýni þá framsýni að vilja áfram vera í fremstu röð við að tryggja mannréttindi allra hópa í samfélaginu.

Herra forseti. Þetta er ánægjuleg stund og gleðilegt að við skulum öll geta sameinast í þessu mikilvæga máli.