Bráðabirgðaútgáfa.
153. löggjafarþing — 50. fundur, 15. des. 2022.
breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2023.
2. mál
Virðulegur forseti. Ég fagna þeirri samstöðu sem er að nást hér í þingsal um að hækka eignarskerðingarmörk í vaxtabótakerfinu um 50%, eins og við í Samfylkingunni höfum talað fyrir í haust og ríkisstjórnin ákvað að leggja til til að liðka fyrir viðræðum á almennum vinnumarkaði. Ég fagna þessu skrefi mjög eindregið, þeirri samstöðu sem hefur náðst í þessum sal um tillögu okkar.