135. löggjafarþing — 51. fundur,  22. jan. 2008.

tilkynning um dagskrá.

[13:32]
Hlusta

Forseti (Sturla Böðvarsson):

Um klukkan tvö í dag, að loknum umræðum um störf þingsins, fer fram utandagskrárumræða um álit mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna um íslenska fiskveiðistjórnarkerfið. Málshefjandi er hv. þm. Guðjón Arnar Kristjánsson. Hæstv. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra verður til andsvara. Umræðan fer fram skv. 1. mgr. 50. gr. þingskapa og stendur í hálfa klukkustund.