139. löggjafarþing — 51. fundur, 17. des. 2010.
gjaldþrotaskipti.
108. mál
Virðulegi forseti. Við erum að fara að samþykkja eitt helsta baráttumál Hagsmunasamtaka heimilanna. Það hefur verið á listanum hjá þeim frá upphafi að stytta fyrningarfrest kröfuréttinda. Þetta er mikill gleðidagur að mínu mati, þetta er mikil réttarbót og ég mun segja já.