151. löggjafarþing — 51. fundur,  2. feb. 2021.

þingsköp Alþingis.

469. mál
[22:01]
Horfa

Inga Sæland (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Helga Hrafni Gunnarssyni ekki bara fyrir þessa frábæru ræðu heldur þessa tillögu sem aðeins helmingur þingflokks Flokks fólksins er á einhverra hluta vegna en einhvern veginn hef ég bara — ég hefði svo sannarlega viljað vera með á þessari tillögu því að hún er mér virkilega að skapi.

Það er ýmislegt sem maður veltir fyrir sér. Við tölum um hvað þingið njóti í rauninni lítils trausts, hve lítil vitneskja sé um það úti í samfélaginu hvernig störfum okkar er háttað. Það virðist algerlega komið í þjóðarsálina að við stöndum reglulega í þessum ræðustól en eins og ég skynja það úti í samfélaginu virðist fólk ekki átta sig á því hversu umfangsmikið starfið er einmitt í nefndunum. Mér finnst þessi tillaga því ekki bara undirbyggja lýðræðið heldur auka beina lýðræðið sem við erum alltaf að kalla eftir. Við erum um alltaf að kalla eftir því að kjósendur okkar, sem komu okkur hingað í starfið, fái að taka þátt í því með okkur og sjái hvað við erum raunverulega að gera. Mér finnst það, af því að ég heyri að hv. þingmaður nefnir það ekkert sérstaklega, ofboðslega jákvæður vinkill á tillögunni. Það sýnir í rauninni störfin okkar, hvað við erum að gera. Það myndi því kannski líka komast í þjóðarsálina, eins og ræðustóllinn hér, að við alþingismenn störfum jú miklu meira en bara hér í þessum sal þótt hann sé mikilvægur og merkilegur. Hér fer í rauninni samþykktin fram eftir að við höfum verið með alla úrvinnsluna inni í nefndunum.

Ég segi í fyrsta lagi að mér þykir mjög miður að ég geti ekki verið með á tillögunni, að ég hafi orðið of sein að ýta á takkann. Í öðru lagi velti ég þeirri hugmynd upp hvort hv. þingmaður geti eitthvað aðeins komið inn á þetta.