141. löggjafarþing — 52. fundur, 13. des. 2012.
vernd og orkunýting landsvæða.
89. mál
Hér í salnum er hv. þm. Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, formaður annarrar nefndarinnar, og tel ég að skilaboðin séu komin til hv. þingmanns um að boðað verði til fundar í nefndinni. Að öðru leyti áttar forseti sig ekki alveg á því hvað þetta varðar fundarstjórn forseta, sem er nýhafin.